Frá
12. ágúst 2027
til
19. ágúst 2027
Frá
365.000 ISK

Viltu koma í ferð þar sem þú gefur sjálfri þér tíma, rými og tækifæri til að hlúa að eigin vellíðan? Komdu þá með í heilsuferð til Sopot þar sem við njótum samverunnar, hreyfum okkur, dönsum, hlæjum og finnum okkar innri styrk undir handleiðslu reynsluboltanna og gleðigjafanna Önnu Sigurðar og Melkorku Kvaran.
Frá
12. ágúst 2027
til
19. ágúst 2027
Frá
365.000 ISK
Í fallegu og nærandi umhverfi, þar sem sólin vermir húðina, hafið er skammt undan og dagarnir einkennast af jafnvægi, gleði og góðri orku. Þar sem þér gefst tækifæri til að rækta bæði líkamlega og andlega heilsu. Við gefum okkur rými fyrir hvíld, ró og endurheimt, njótum kyrrðarinnar og hlustum á líkamann um leið og við leyfum huganum að slaka á. Þetta er miklu meira en bara ferðalag, þetta er tími fyrir þig til að næra líkamann, styrkja hugann, finna innri ró, endurheimta orku og tengjast sjálfri þér og öðrum konum. Komdu með opinn hug, góða skapið og löngun til að njóta.



Anna Sigurðardóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Samkenndar Heilsuseturs. Anna er einnig með áratuga reynslu sem einkaþjálfari og fyrirlesari og hefur víðtæka þekkingu á sjálfstyrkingu, heilsueflingu og hegðunarbreytingum. Hún mun bjóða upp á sjálfstyrkjandi vinnustofu með nálgun samkenndar og Yoga Nidra.
Melkorka Árný Kvaran er hjúkrunarfræðingur, íþróttakennari og matvælafræðingur sem hefur margra ára reynslu í þjálfun einstaklinga og hópa sem og fararstjórn. Hennar helstu áhugamál eru hreyfing, útivist og ferðalög. Hún mun leiða daglegar æfingar sem styrkja líkama og huga.




Fimmtudagur, 12.ágúst: Komudagur
Föstudagur, 13.ágúst:
Laugardagur, 14.ágúst:
Sunnudagur, 15.ágúst:
Mánudagur, 16.ágúst:
Þriðjudagur, 17.ágúst:
Miðvikudagur, 18.ágúst:
Fimmtudagur, 19.ágúst:



Hótelið og nærumhverfi þess bjóða upp á fjölbreytta möguleika til afþreyingar utan skipulagðrar dagskrár. Þar má meðal annars njóta heilsulindar, slaka á á ströndinni eða rölta um fallegar götur Sopot.
Í meðfylgjandi skjali má finna ýmsar hugmyndir og tillögur að veitingastöðum, verslunum og áhugaverðum stöðum í Sopot og nágrenni. Þar má meðal annars finna úrval veitingastaða í Sopot, Gdańsk og Gdynia, auk upplýsinga um verslunarmiðstöðvar og verslunarsvæði á svæðinu.

Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða skilaðu inn á eyðublaðið, við hjálpum þér að finna ferð fyrir þig!