Heilsuferð kvenna til Malaga
Komdu með í einstaka heilsuferð til Malaga þar sem vellíðan, hreyfing og innri ró fá að njóta sín í góðum félagsskap 🌸
Heilsuferð kvenna til Malaga
Komdu með í einstaka heilsuferð til Malaga þar sem vellíðan, hreyfing og innri ró fá að njóta sín í góðum félagsskap 🌸
Dagsetningar
Frá
9. maí 2026
til
16. maí 2026
Frá
379,900 ISK
Komdu með í heilsuferð kvenna til Malaga 9.-16 maí 2026
Í samstarfi við frábæru Melkorku Árný Kvaran og Önnu Sigurðardóttur sem eru miklir reynsluboltar í svona ferðum kynnum við hjá Freyja Travel eftirfarandi ferð.
Námskeiðið í heilsuferðinni styður við heildræna vellíðan, samskiptafærni og sjálfseflingu starfsfólks.
- Á námskeiðinu er unnið á bæði andlegum og líkamlegum grunni með áherslu á sjálfsskoðun, líkamsvitund og nærandi sjálfsvinnu sem hefur valdeflandi áhrif.
- Þátttakendur fá tækifæri til að efla líkamlega og andlega heilsu með reglubundinni hreyfingu, styrktaræfingum, jóga, þolþjálfun, hugleiðslu og samkenndarvinnu út frá grundvelli lýðheilsusjónarmiða.
- Námskeiðið fer fram í fallegri og róandi náttúru, þar sem þátttakendur upplifa tengingu við sjálfa sig og umhverfið í góðum og nærandi félagsskap. Slíkt umhverfi styður við dýpri slökun, endurnæringu og aukna orku.
- Markmiðið er að efla innri styrk, seiglu og jafnvægi. Með því eykst vellíðan, orka og einbeiting, sem í kjölfarið stuðlar að uppbyggilegri og jákvæðari samskiptum í lífi og starfi.
Fararstjórar ferðarinnar eru:
Anna Sigurðardóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna og eigandi Samkenndar Heilsuseturs. Anna er einnig með áratuga reynslu sem einkaþjálfari og fyrirlesari og hefur víðtæka þekkingu á sjálfstyrkingu, heilsueflingu og hegðunarbreytingum. Hún mun bjóða upp á Yoga Nidra, stutt fræðsluinnlegg og verkefni sem efla sjálfsþekkingu, samkennd og virðingu í eigin garð.
Melkorka Árný Kvaran er hjúkrunarfræðingur, íþróttakennari og matvælafræðingur sem hefur margra ára reynslu í þjálfun einstaklinga og hópa sem og fararstjórn. Hennar helstu áhugamál eru hreyfing, útivist og ferðalög. Hún mun leiða daglegar æfingar sem styrkja líkama og huga.
Verð 379.900 m.v. tvo í herbergi
Innifalið í verði:
✔ Flug til og frá Malaga
✔ Gisting í 5 stjörnu Higuerón Resort
✔ Morgunverðarhlaðborð með mimosu
✔ Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu og nærandi útivistarsvæði og sundlaugum.
✔ Daglegar æfingar: jóga, styrktarþjálfun og gönguferðir.
✔ Yoga Nidra djúpslökun og samkenndar hugleiðslur.
✔ Verkefni/dagbókarskrif ogstutt fræðsluerindi sem efla sjálfsþekkingu, sátt og innri styrk
✔ Skutl til og frá flugvelli
✔ Nærandi samvera og leiðsögn Önnu og Melkorku
Aukalega í boði gegn gjaldi:
– Fjölbreytt úrval opinna tíma í líkamsræktaraðstöðunni
– Spa-meðferðir, nudd og dekur
– Golf, hjólatúrar og siglingar
Plássin eru takmörkuð – skráning hafin
50.000 kr. óafturkræft staðfestingargjald greiðist við skráningu sem greiðist inn á eftirfarandi reikning hjá Freyja Travel
ATH! Sum stéttarfélög veita styrki fyrir heilsuferð eins og þessa.
kt. 6504062140
370-26-039638
➡️ Hafðu samband hjá klara@freyjatravel.is og tryggðu þér sæti í sólinni



🌸 Dagskrá ferðarinnar og fleiri upplýsingar 🌸
Laugardagur 9. maí
- Kl 8:00 flug til Malaga
- 16:00 Check in og Welcome drink
- 18:00 Göngutúr um hótelsvæðið
- 19:00 Sameiginlegur kvöldverður á Roof Tob Bar á hótelinu (Infinity Pool Bar)
Sunnudagur 10. maí
- 9:00-10:00 Hittumst í anddyrinu og röltum saman á Oncross svæðið; Létt æfing til að kveikja á kerfinu.
- 11:00 Göngutúr í matvörubúð
- 16:00-17:00 Sjálfsstyrking og yoga nidra
- 19:30 Sameiginlegur kvöldverður Aria Bistro – veitingastaður á hótelinu
Mánudagur 11. maí
- 9:30-10:30 Poweryoga-flæði á Oncross
- 16:00-17:00 Styrktarþjálfun í tækjasal
- 19:00 Kvöldverður á Bech Club
Þriðjudagur 12. maí
- 10:00-14:00 Hjólandi city tour um Marbella (valkvæð ferð)
- Frjáls tími áfram í Marbella (shopping, sightseeing osfrv) eða fara aftur á hótel.
Miðvikudagur 13. maí
- 7:00-8:00 Sólarupprásar Power yoga og Samkenndarhugleiðsla á Oncross svæðinu
- 13:00-16:00 Sigling (valkvæð ferð)
- 18:00-23:00 Sameiginlegur Galadinner á veitingastaðnum El Higueron
Fimmtudagurinn 14. maí
- 9:30-10:30 Núvitundarganga og æfingar á Oncross svæðinu.
- 16:00-17:00 Styrktarþjálfun í tækjasal
Föstudagurinn 15. maí
- 10:00-13:00 Fjallganga
- 16:00 Sjálfsstyrking og yoga nidra
- 18:00 Fordrykkur og sameiginlegur kvöldverður á sjávarréttarstað við ströndina, Los Marinos Jose.
Laugardagurinn 16. maí
- 9:00-10:00 Núvitundarganga og æfing á Oncross
- Pakka og Check out
- Getum verið í sundlaugagarðinum fram að brottför og farið í sturtu í ræktinni eða spa-inu
- 12:45 ca Brottför af hóteli
- 15:45 Flug heim til Íslands (tökum sólina með okkur!)
Það sem er í boði á hótelinu:
- Þrjú sundlaugasvæði
- Spa-dekur meðferðir
- Risavaxin líkamsræktarsalur, ókeypis aðgangur (hægt að borga sig inn í Pilates, yoga, hjólatíma, sundleikfimi, crossfit tíma ofl.)
- Paddle og tennis vellir, strandblak
- Beach club á vegum Hótelsins á ströndinni
- Ofl ofl…..endilega skoðið vefsíðu hótelsins vel
Vefsíða hótelsins: https://www.hilton.com/en/hotels/agprhqq-higueron-hotel-malaga/
Veitingastaðir á Hótelinu: https://www.hilton.com/en/hotels/agprhqq-higueron-hotel-malaga/dining/
Aukaferðir og valkvæðar.
- Hjólaferð með leiðsögumanni í Marbella: Valkvæð ferð sem kostar ca 50 evrur hjólatúrinn sjálfur. Transport aukalega.
- Sigling með drykkjum og snarl innifalið: Valkvæð ferð sem kostar ca 40 evrur siglingin sjálf. Transport aukalega.
Margt spennandi í umhverfinu.
- Golfvellir í ca 20 mín akstursfjarlægð
- Beach Club á ströndinni sem tilheyrir hótelinu; hægt að borða/drekka/chilla þar.
- Álíka langt inn til Marbella og Malaga (ca 30 mín í taxa)
- Shopping outlet í ca 20 mín akstursfjarlægð
Aðrar mikilvægar upplýsingar:
- Morgunmatur er alla morgna kl 7-11
- Fjórir sameiginlegir kvöldverðir – sjá dagskrána (9., 10., 13. og 15. maí).
- Önnur kvöld er frjáls kvöldmatur, en Anna og Melkorka fara alltaf á einhvern stað að borða og allar sem vilja eru hjartanlega velkomnar með.
- Fimm veitingastaðir eru á hótelinu, þar af einni Michelinstaður
- Hótelið er staðsett í miðri brekku (stór/brött á köflum). Það er ca 1 km upp í matvöruverslun frá hótelinu og einnig ca 1 km niður á strönd frá hótelinu.
- Hótelið býður upp á skutlu með reglulegu millibili yfir daginn upp og niður frá hótelinu.
Minnið ykkur reglulega á að þetta er ykkar ferð; takið þátt í því sem ykkur langar og þið hafið þörf fyrir, hverju sinni.
Munum möntruna; „Þetta er ferð fyrir mig, frá mér, til mín“ 🌸
Hafðu samband
Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða skilaðu inn á eyðublaðið, við hjálpum þér að finna ferð fyrir þig!