Endurmenntunar-ferðir fyrir kennara

Endurmenntunar-ferðir fyrir kennara

Við skipuleggjum endurmenntunarferðir sem dýpka sýnina á skólastarf í gegnum faglegar heimsóknir og samtal, umvafið stórfenglegri náttúru. Við hönnum hverja ferð utan um þarfir og drauma hvers skóla.

Dagsetningar

Frá

12. júní 2026

til

17. júní 2026

Uppselt

Frá

2. júní 2026

til

7. júní 2026

Uppselt

Frá

17. júní 2026

til

24. febrúar 2026

Laust

Frá

11. júní 2026

til

16. júní 2026

Uppselt

Endurmenntun sem nærir

Endurmenntunarferðir okkar eru ekki „venjulegar hópferðir.“

Ferðirnar eru hugsaðar sem vettvangur sem:

  • Veitir faglegan innblástur
  • Hvetur til samtals og speglunar
  • Veitir nýja sýn á skólastarf
  • Styrkir hópinn með sameiginlegum upplifunum

Við skipuleggjum skólaheimsóknir, vettvangsnám, fyrirlestra og vinnustofur, en líka göngur í fjöllunum, kvöldsamtöl yfir góðum mat og augnablik sem skapa tengsl. Því besta faglega þróunin gerist oft mitt á milli dagskrárliða.

Austurríki og Ítalía

Í gegnum árin höfum við byggt upp persónulegt tengslanet við skóla og fræðsluaðila, meðal annars í Austurríki og Suður Tíról á Ítalíu.

Þar höfum við skipulagt skólaheimsóknir, vettvangsnám í þjóðgörðum og samtal við kennara og stjórnendur um skólaþróun, inngildingu og sjálfbærni.

Styrkir stéttarfélaga

Við vitum hvað þarf til að ferðin verði styrkhæf. Við aðstoðum ykkur með:

  • Faglega dagskrá og vandaðar námskeiðslýsingar.
  • Kostnaðaráætlanir sem henta kröfum stéttarfélaga.
  • Öll nauðsynleg gögn fyrir umsóknir og staðfestingar.

Við vitum hvað þarf að liggja fyrir – og hjálpum ykkur að gera ferlið einfalt og öruggt.

Langar ykkur að fara?

Sendið okkur línu og segið frá ykkar skóla, ykkar áherslum og ykkar draumum. Við setjum saman ferð sem styður við faglega þróun og nýtir styrki stéttarfélaga á skynsaman hátt. Við hlökkum til að heyra frá ykkur.

Klara & Snorri, Freyja Travel

Spurt og svarað

Þú hefur samband við okkur með því að senda tölvupóst á info@freyjatravel.is eða fylla út formið neðst á síðunni. Við höfum samband og aðstoðum þig við að setja saman draumaferðina.

Já, við bjóðum upp á að sérsníða ferðirnar að þörfum og óskum hvers og eins. Hvort sem það er að aðlaga gönguleiðir, útbúa sérstakt mataræði eða skipuleggja afslappandi daga. Okkar markmið að gera hverja ferð sem ánægjulegasta og mæta þörfum allra gesta.

Hafðu samband

Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða skilaðu inn á eyðublaðið, við hjálpum þér að finna ferð fyrir þig!

0 / 2000