Skíði í Austurríki með Freyja Travel

Taktu þátt í einstakri skíðaferð með Freyja Travel til Neukirchen am Grossvenediger, þar sem þú getur notið frábærrar skíðaupplifunar í fallegum fjöllum Austurríkis. Hvort sem þú ert byrjandi eða vanur skíðamaður, bjóðum við upp á margvíslega möguleika sem passa fyrir alla fjölskylduna.

Á döfinni hjá Freyja Travel

Næstu ferðir

Freyja Travel býður þér inn í heim þar sem hvert spor í snjónum leiðir til nýrrar uppgötvunar. Hvort sem þú ert að leita að spennandi ævintýrum eða notalegum fjölskyldubrekku, höfum við ferðina sem hentar þínum þörfum.

Ekki láta drauminn bíða—Skoðaðu næstu skíðaferðir og bókaðu þína upplifun með Freyja Travel!

Neukirchen am Grossvenediger

14 – 29. January 2025

Neukirchen am Grossvenediger

03.05 – 03.18  2025

Neukirchen am Grossvenediger

12 – 28. April 2025

Drauma ferð í hjarta Alpanna

Skíðaævintýri í Austurríki

Skíðakennsla

Gestir geta valið hvort þeir vilja prófa skíðabúnaðinn eða þiggja skíðakennslu frá reyndum kennurum í allt að 5 daga. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem vilja bæta skíðatæknina eða prófa skíði í fyrsta skipti.

Skíðasafarí og sleðaferðir

Upplifðu spennuna í skíðasafarí þar sem við heimsækjum nálæg skíðasvæði, og rennum okkur á lengstu upplýstu sleðabraut í heimi sem er heilir 14 km á lengd. Þetta er fullkomin leið til að sjá meira af svæðinu og upplifa ævintýri utan hefðbundinna skíðabrauta.

Æfingaferðir fyrir skíðadeildir

Við bjóðum einnig upp á sérhæfðar æfingaferðir fyrir skíðadeildir, þar sem ungmenni á aldrinum 5-14 ára geta æft á sérstökum æfingasvæðum. Á meðan geta fjölskyldur þeirra notið dagsins á brekkunum eða tekið þátt í skíðakennslu hjá einum af skíðaskólum svæðisins.

Matur og gisting

Í öllum okkar vetrarferðum er hálft fæði innifalið. Gestir geta notið morgunverðarhlaðborðs og valið úr þremur mismunandi aðalréttum á kvöldin. Auk þess bjóðum við upp á fjölbreytt og glæsilegt forrétta- og salathlaðborð, auk úrvals eftirrétta.

Það sem þú þarft að vita

Algengar Spurningar

Hvernig bóka ég ferð?

Þú hefur samband við okkur með því að senda tölvupóst á hi@freyjatravel.is eða fylla út formið neðst á síðunni. Við höfum samband og aðstoðum þig við að setja saman draumaferðina.

Hvernig er skíðakennslan skipulögð?

Skíðakennsla er í boði fyrir alla, frá byrjendum til reyndra skíðamanna, og er veitt af reyndum kennurum. Skíðakennslan er valfrjáls og hægt er að þiggja hana í allt að 5 daga eftir þörfum og óskum hvers og eins.

Hvað er skíðasafarí og hvernig er það skipulagt?

Skíðasafaríið er sérstök dagferð þar sem heimsótt eru mismunandi skíðasvæði í nágrenninu. Þetta gefur þér tækifæri til að upplifa fjölbreyttari skíðabrekkur og kynnast svæðinu betur. Ferðin er fullkomlega skipulögð og leiðsögð af íslenskum leiðsögumanni.

Er hægt að fá leigðan skíðabúnað á staðnum?

Já, gestir geta valið hvort þeir vilja prófa nýjasta skíðabúnaðinn sem er í boði til leigu. Við tryggjum að allir fái búnað sem hentar þeirra getu og reynslu.

Er matur innifalinn í verði skíðaferðarinnar?

Verðið á skíðaferðinni til Neukirchen am Grossvenediger inniheldur hálft fæði, þar á meðal morgunverðarhlaðborð og kvöldverð þar sem hægt er að velja úr þremur mismunandi aðalréttum. Einnig er boðið upp á fjölbreytt og glæsilegt forrétta- og salathlaðborð, auk úrvals eftirrétta.

Fréttir frá Freyja Travel

Nýjustu skíðafréttir

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Fólk sem mælir með

Umsagnir Viðskiptavina

Kannaðu einstaka náttúru- og menningu Austurríkis

Sumarferðir til Austurríkis

Við förum með þér alla leið

Kynntu þér einstök ævintýri sem sumarferðir Freyju Travel til Austurríkis hafa upp á að bjóða. 

Hafðu samband

Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða skeyti á samfélagsmiðlum, eða fylltu út formið.

13 + 13 =