Ævintýri á Íslandi með Freyja Travel
Ísland býður upp á ótrúleg náttúruundur, frá magnaðri eldvirkni og heitum laugum til stórbrotinna jökla. Með leiðsögn okkar upplifir þú Ísland á nýjan og persónulegan hátt.
Verum í sambandi
Ísland með Freyja Travel
Hjá Freyja Travel erum við sérfræðingar í að búa til sérsniðnar ferðir sem uppfylla einstaka óskir og þarfir ferðalanga. Hvort sem þú ert að leita að spennu eða slökun, getur þú haft áhrif á hvernig ferðin þín er skipulögð. Hér fyrir neðan finnur þú dæmi um ferðir sem við bjóðum upp á.
Bókaðu sérsniðna ferð með Freyja Travel í dag og upplifðu Ísland á þinn hátt.
Gullni hringurinn
Landmannalaugar Dagsferð
Jöklar og fossar Dagsferð
Drauma ferð í hjarta Alpanna
Skíðaævintýri í Austurríki
Ferðir sniðnar að þínum áhugamálum
Við bjóðum upp á margvíslegar ferðir sem höfða til fjölbreyttra áhugamála. Hvort sem þú ert að leita að rólegum gönguferðum meðfram sjávarströndum eða spennandi jöklagöngum, getur þú valið ferðir sem passa þínum þörfum og draumum.
Sérfræðiþekking á staðnum
Snorri og Klara, hafa djúpa þekkingu og reynslu á íslenskri náttúru og menningu. Þau deila ekki aðeins sögum og staðreyndum, heldur líka persónulegum upplifunum og innsýn sem gerir ferðina einstaka.
Hágæða upplifun
Við leggjum áherslu á gæði og persónulega þjónustu í öllum okkar ferðum. Bílafloti okkar er vel útbúinn til að takast á við íslenskar aðstæður, og við bjóðum upp á úrval af gistingu og matarupplifunum sem endurspegla íslenska gestrisni og hefðir.
Ferðir fyrir alla fjölskylduna
Freyja Travel býður einnig upp á fjölskylduvænar ferðir þar sem börn og fullorðnir geta saman kannað undur Íslands. Frá skemmtilegum fjöruferðum til lærdómsríkra safnaheimsókna, tryggjum við að allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Það sem þú þarft að vita
Algengar Spurningar
Hvernig bóka ég ferð?
Þú hefur samband við okkur með því að senda tölvupóst á hi@freyjatravel.is eða fylla út formið neðst á síðunni. Við höfum samband og aðstoðum þig við að setja saman draumaferðina.
Hvernig er skíðakennslan skipulögð?
Skíðakennsla er í boði fyrir alla, frá byrjendum til reyndra skíðamanna, og er veitt af reyndum kennurum. Skíðakennslan er valfrjáls og hægt er að þiggja hana í allt að 5 daga eftir þörfum og óskum hvers og eins.
Hvað er skíðasafarí og hvernig er það skipulagt?
Skíðasafaríið er sérstök dagferð þar sem heimsótt eru mismunandi skíðasvæði í nágrenninu. Þetta gefur þér tækifæri til að upplifa fjölbreyttari skíðabrekkur og kynnast svæðinu betur. Ferðin er fullkomlega skipulögð og leiðsögð af íslenskum leiðsögumanni.
Er hægt að fá leigðan skíðabúnað á staðnum?
Já, gestir geta valið hvort þeir vilja prófa nýjasta skíðabúnaðinn sem er í boði til leigu. Við tryggjum að allir fái búnað sem hentar þeirra getu og reynslu.
Er matur innifalinn í verði skíðaferðarinnar?
Verðið á skíðaferðinni til Neukirchen am Grossvenediger inniheldur hálft fæði, þar á meðal morgunverðarhlaðborð og kvöldverð þar sem hægt er að velja úr þremur mismunandi aðalréttum. Einnig er boðið upp á fjölbreytt og glæsilegt forrétta- og salathlaðborð, auk úrvals eftirrétta.
Fréttir frá Freyja Travel
Nýjustu Íslandsfréttir
Fólk sem mælir með
Umsagnir Viðskiptavina
Kannaðu hjarta alpanna með freyja travel
Skíðaferðir til Austurríkis
Við förum með þér alla leið
Kynntu þér einstök ævintýri sem skíðaferðir Freyju Travel til Austurríkis hafa upp á að bjóða.