Heilsuferð kvenna til Malaga – 30.maí – 6. júní 2026

4. september, 2025

Í samstarfi við frábæru Melkorku Árný Kvaran og Önnu Sigurðardóttur sem eru miklir reynsluboltar í svona ferðum kynnum við hjá Freyja Travel eftirfarandi ferð.

Vika fyrir líkama, sál og samveru í sólinni!

Komdu með í einstaka heilsuferð til Malaga þar sem vellíðan, hreyfing og innri ró fá að njóta sín í góðum félagsskap. Dagskráin sameinar hreyfingu, slökun, fræðslu og rými fyrir sjálfa þig – í nærandi umhverfi við Miðjarðarhafið.

Fararstjórar ferðarinnar eru:

Anna Sigurðardóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna og eigandi Samkenndar Heilsuseturs.

Anna er einnig með áratuga reynslu sem einkaþjálfari og fyrirlesari og hefur víðtæka þekkingu á sjálfstyrkingu, heilsueflingu og hegðunarbreytingum. Hún mun bjóða upp á Yoga Nidra, stutt fræðsluinnlegg og verkefni sem efla sjálfsþekkingu, samkennd og virðingu í eigin garð.

Melkorka Árný Kvaran er hjúkrunarfræðingur, íþróttakennari og matvælafræðingur sem hefur margra ára reynslu í þjálfun einstaklinga og hópa sem og fararstjórn. Hennar helstu áhugamál eru hreyfing, útivist og ferðalög. Hún mun leiða daglegar æfingar sem styrkja líkama og huga.

Verð: 359.900kr

Innifalið í verði:

✔ Flug til og frá Malaga

✔ Gisting í 5 stjörnu Higuerón Resort

✔ Morgunverðarhlaðborð með mimosu

✔ Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu og útisundlaugum

✔ Daglegar æfingar: jóga, styrktarþjálfun og gönguferðir.

✔ Yoga Nidra djúpslökun og samkenndar hugleiðslur.

✔ Verkefni og stutt fræðsluerindi sem efla sjálfsþekkingu, sátt og innri styrk

✔ Skutl til og frá flugvelli

✔ Nærandi samvera og leiðsögn Önnu og Melkorku

✔ Viðurkennd sem námskeið / endurmenntun fyrir stéttarfélögin

Aukalega í boði gegn gjaldi:

▫ Fjölbreytt úrval opinna tíma í líkamsræktaraðstöðunni

▫ Spa-meðferðir, nudd og dekur

▫ Golf, hjólatúrar og siglingar

Plássin eru takmörkuð – skráning hafin

50.000 kr. óafturkræft staðfestingargjald greiðist við skráningu sem greiðist inn á eftirfarandi reikning hjá Freyja Travel

kt. 6504062140

370-26-039638

➡️ Hafðu samband hjá klara@freyjatravel.is og tryggðu þér sæti í sólinni